Ljóðaunnendur fögnuðu 10 ára afmæli Ljóðaseturs Íslands á Siglufirði í gær, fimmtudaginn 8. júlí og mættu á viðburð sem haldinn var í tilefni dagsins á Ljóðasetrinu.
Vegleg dagskrá hófst með því að Þórarinn Hannesson fór yfir sögu safnsins og sagði frá starfsemi þess, Edda Björk Jónsdóttir og Hörður Ingi Kristjánsson fluttu nokkur lög. Ragnar Helgi Ólafsson flutti nokkur eigin ljóð og einnig ljóð föður síns Ólafs Ragnarsson (sjónvarpsmanns, bókaútgefenda og Siglfirðings).
Þórarinn Hannesson flutti síðan eigin frumsamið lag við ljóð Ólafs Ragnarssonar. Að því loknu klippti bæjarstjóri Fjallabyggðar Elías Pétursson og ljóðaunnandi á borða og opnaði þar með inn í hið nýja bókarými safnsins sem er upp á tvær hæðir.
Það verður áframhaldandi afmælisdagskrá næstu daga og er dagskráin á þessa leið.
Föstudagur 9. júlí kl. 16.00:
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson flytur eigin ljóð og aldrei að vita nema gítarinn fari á loft líka.
Laugardagur 10. júlí kl. 16.30:
Þórarinn Eldjárn flytur eigin ljóð. Svavar Knútur flytur nokkur lög.
Sunnudagur 11. júlí kl. 16.00:
Þórarinn Hannesson flytur ljóð og lög fyrir börn.
Endilega að líta inn, skoða og njóta.

Þórarinn Hannesson forstöðumaður og stofnandi Ljóðaseturs Íslands 
Edda Björk Jónsdóttir og Hörður Ingi Kristjánsson fluttu nokkur lög 
Ragnar Helgi Ólafsson flutti eigin ljóð og ljóð föður síns Ólafs Ragnarssonar 
Gestir og ljóðaunnendur 
Ragnar Helgi Ólafsson með sonardóttur sína 
Gestir og ljóðaunnendur 
Þórarinn Hannesson flytur eigið lag við ljóð Ólafs Ragnarssonar 
Brynja Stefánsdóttir og Björn Þórðarson 
Elías Pétursson ljóðaunnandi og bæjarstjóri Fjallabyggðar klippir á borðann 
Elías Pétursson ljóðaunnandi og bæjarstjóri Fjallabyggðar klippir á borðann 
Veglegar veitingar voru í boði 
Séð inn í bókarýmið 

Bókarými á tveimur hæðum 
Ljóðasetur Íslands
