Fyrirtækið Landhreinsun ehf. í samstarfi við Húnaþing vestra mun standa fyrir söfnun á brotamálmum í sveitarfélaginu á næstu vikum. Hlutir á borð við heyvinnutæki, rafgeyma, heimilistæki, bíla og einnig dekk er í boði að taka svo lengi sem aðgengilegt er að þeim með vörubíl. (afskráningarpappírar fyrir bíla eru fylltir út á staðnum ef það á við)

Aðilar sem eru með brotajárn eru hvattir til að nýta sér hreinsunina sem er þeim að kostnaðarlausu og hafa samband við Björn Bjarnason rekstrarstjóra Húnaþings vestra með því að senda tölvupóst á bjorn@hunathing.is