Í fyrra sló Sápuboltamótið á Ólafsfirði rækilega í gegn og verður blásið aftur til leiks þann 21. júlí kl. 13.00

Á sápuboltamótinu spila fjórir menn saman í liði. Engin takmörk eru á skiptimönnum (fjölda aðila í liði)
Lið eru hvött til þess að mæta í búningum en veitt verða verðlaun fyrir flottasta búninginn ásamt öðrum skemmtilegum viðurkenningum sem veitt verða á lokahófi um kvöldið.
Gamli góði Bakkus er leyfilegur á svæðinu, en þó skal gæta hófs.

Leikreglur eru eftirfarandi: 
– Þú hittir inn í markið þú skorar
– 4 inn á í einu.
– 2×5 mín
– Refsingar eru í formi áfengra drykkja
– Frjálsar skiptingar
– Dómari ákveður refsingar og refsiverð brot

Þegar líður að kveldi verður lokahóf og verðlaunaafhending sem endar með hörku dansleik.

18 ára aldurstakmark.

Sjá viðburð