Bæjarstjórn Fjallabyggðar leitar ábendinga á fyrirhuguðu deiliskipulagsverkefni fyrir þjónustuhús og smáhýsi í Skarðsdal. Í skipulagslýsingu, sem gefin er út af Basalt arkitektum fyrir framkvæmdaraðila, koma fram upplýsingar um forsendur, stefnu og fyrirhugað skipulagsferli. Tilgangur með útgáfu lýsingar er að tryggja aðkomu almennings og hagsmunaaðila að skipulagsferlinu á fyrstu stigum.

Á skipulagssvæðinu verður gert ráð fyrir 10 smáhýsum auk þjónustubygginga til útleigu. Markmið skipulagsins er að styrkja ferðaþjónustu innviði á svæðinu.

Skipulagslýsingin sem er sett fram í greinargerð er til sýnis á tæknideild, í Ráðhúsi Fjallabyggðar og  á heimasíðu sveitarfélagsins www.fjallabyggd.is.

Íbúum og hagsmunaaðilum er gefinn kostur á því að senda inn ábendingar varðandi viðfangsefni og markmið skipulagsins. Ábendingum skal skila skriflega á skrifstofu Fjallabyggðar, Gránugötu 24, 580 Siglufirði eða á netfangið iris@fjallabyggd.is fyrir lok 1. desember nk.

Skipulags- og tæknifulltrúi

Skipulagslýsing – Smáhýsabyggð

Mynd/skjáskot úr skipulagslýsingu