N4 er að vinna að gerð fjögurra þátta um samfélagsleg áhrif norðlenskra jarðganga.

Fyrsti þátturinn fjallaði um Strákagöng, sem tengir Siglufjörð við Skagafjörð.

Nú var sýndur þáttur um Múlagöng, næsti þáttur fjallar um Héðinsfjarðargöng og að lokum Vaðlaheiðargöng.

Umsjón með þáttunum hefur Karl Eskil Pálsson. Karl Eskil kom í viðtal í þáttinn Tíu dropa á FM Trölla þar sem hann sagði frá þáttunum og ýmsu öðru. Hlusta má á viðtalið: Hér (kom inn í þáttinn á c.a. 30. mín).

 

 

Forsíðumynd: Skjáskot N4