Tekin fyrir beðni á 307. fundi skipulags- og umhverfisnefndar Fjallabyggðar um endurskoðun á mokstursplani vegna tilkomu heimahafnar Landhelgisgæslunnar fyrir varðskipið Freyju.

Nefndin leggur til að settur verði í fyrsta forgang mokstur frá gatnamótum Túngötu og Ránargötu niður að Óskarsbryggju. Nefndin óskar einnig eftir því að kannaður verði möguleiki á að Vegagerðin taki yfir mokstur á þessum vegkafla.