Matvælastofnun varar við neyslu á einni lotu af Coconut & cashew soft keto köku frá Frank & Oli sem fyrirtækið Multi-Made ehf flytur inn. Kökurnar hafa verið innkallaðar vegna aðskotahlutar (plast/gler) sem fannst í einni kökunni.
Fyrirtækið hefur í samráði við heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness innkallað vöruna í varúðarskyni og sent út fréttatilkynningu.
Neytendum sem keypt hafa vöruna er bent á að skila henni í þeirri verslun sem hún var keypt gegn endurgreiðslu eða skipti á samskonar vöru.
Innköllunin á eingöngu við eftirfarandi framleiðslulotu:
- Vörumerki: Frank&Oli.
- Vöruheiti: Keto Coconut & Cashew Soft Cookie.
- Strikamerki: 5900316552239.
- Best fyrir: 27-4-2023.
- Nettómagn: 50g
- Dreifing: Hagkaups og Bónusverslanir.