Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af melónufræjum frá Essen AlHasnaA vegna aflatoxíns myglueiturs, sem Miðausturlandamarkaðurinn flytur inn.
Fyrirtækið hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum Premium Class-Roter Wassermelonenkerne.
Matvælastofnun fékk upplýsingar um vöruna í gegnum RASFF hraðvirðvörunarkerfi Evrópu um matvæli og fóður og lét eftirlitið vita.
Innköllunin á einungis við eftirtalda framleiðslulotu;
- Vörumerki: Essen AlHasnaA
- Vöruheiti: Premium Class – Roter Wassermelonenkerne
- Geymsluþol: Best fyrir Dagsetning: 31.12.2022
- Strikamerki: 2021-8600716
- Nettómagn: 300 g
- Framleiðsluland: Lebanon
- Dreifing: Miðausturlandamarkaðurinn, Lóuhólum 6, 111 Reykjavík
Neytendum sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki og farga eða skila henni til versluninnar gegn endurgreiðslu.
Ítarefni
Fréttatilkynning frá heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur