Álagningu fasteignagjalda er lokið hjá Akureyrarbæ og eru álagningarseðlar aðgengilegir fasteignaeigendum í þjónustugátt sveitarfélagsins og á island.is.

Álagningarseðlar eru ekki sendir út á pappír og sparar það bæði fé og fyrirhöfn fyrir utan að vera mun umhverfisvænna. Álagning dreifist líkt og áður á átta gjalddaga frá 3. febrúar til 3. september og eindagi er 30 dögum síðar.

Álagningarprósenta fasteignaskatts fyrir íbúðarhúsnæði hefur lækkað frá fyrra ári og er 0,28% af fasteignamati. Álagningarprósenta af öðru húsnæði hefur einnig lækkað og er 1,61%. Óbreytt álagningarprósenta, 1,32%, er af fasteignamati skóla, sjúkrahúsa, bókasafna og íþróttahúsa. Sjá nánar í gjaldskrá.

Heildarálagning fasteignagjalda ársins 2026 er 6.904 milljónir króna, þar af er fasteignaskattur 4.041 milljónir, lóðarleiga er 946 milljónir, vatnsgjald 485 milljónir króna, fráveitugjald 886 milljónir og sorphirðugjald 545 milljónir króna. Sorphirðugjald er lagt á 9.200 heimili sem er fjölgun um 130 heimili frá fyrra ári. Á árinu 2025 nam álagning fasteignagjalda samtals 6.444 milljónum króna.

850 lífeyrisþegar fá afslátt

Bæjarstjórn samþykkti breytingu á reglum um afslátt af fasteignaskatti hjá tekjulitlum elli- og örorkulífeyrisþegum og hækkaði tekjumörk. Nú fá 850 elli- og örorkulífeyrisþegar afslátt og nemur heildarfjárhæð afsláttar 80 milljónum króna eða 95 þúsund krónum að meðaltali.

Afsláttur ræðst af tekjum og getur hæstur orðið 149.500 krónur. 140 fasteignaeigendur njóta hámarksafsláttar og 319 fasteignaeigendur njóta fulls afsláttar af fasteignasköttum sínum. Árið áður nutu 873 afsláttar af fasteignaskatti og nam heildarfjárhæðin 83 milljónum króna. Reglurnar er hægt að nálgast hér. Afsláttur af fasteignaskatti er reiknaður út frá tekjum samkvæmt skattframtali 2025 og þarf ekki að sækja sérstaklega um.

Sorphirðugjöld

Sorphirðugjöld eru sem fyrr innheimt með fasteignagjöldum. Á árinu 2025 var í fyrsta sinn innheimt skv. nýrri gjaldskrá í kjölfar þess að fjórflokkun sorps hófst við hvert heimili. Lesa má meira um það hér.

Áður var innheimt fast gjald á hverja íbúð óháð gerð hennar og stærð. Nú er áfram innheimt lægra fast gjald á hverja íbúð en að auki eru innheimt mismunandi gjöld eftir stærð og gerð sorpíláta.

Á álagningarseðlum má sjá sorphirðugjöld viðkomandi eignar, bæði fastagjaldið og ílátagjöld. Upphæðir ílátagjalda taka mið af gjaldskránni auk þess sem í fjölbýlishúsum er upphæð á hverja íbúð í hlutfalli við fermetrastærð íbúðar.

Sérbýli greiða skv. gjaldskrá þeirra íláta sem þau fá. Þá geta tvö eða fleiri sérbýli sameinast um ílát ef það hentar og þannig lækkað upphæð álagðra ílátagjalda. Hægt er að senda inn óskir um breytingar á fjölda og samsetningu íláta í þjónustugátt Akureyrarbæjar eða með því að senda tölvupóst á netfangið: flokkumfleira@akureyri.is. Innheimt er umsýslugjald fyrir hverja breytingu, það er nú 4.000 kr. skv. gjaldskrá.