Árlegur alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa verður haldinn sunnudaginn 21. nóvember. Í ár verður kastljósinu meðal annars beint að afleiðingum þess að nota ekki öryggisbelti.

Táknrænar minningarstundir verða haldnar hringinn í kringum landið í samvinnu við Slysavarnafélagið Landsbjörg en í fyrra voru fjölmargir slíkir viðburðir haldnir. Sökum sóttvarnaráðstafana er fólk hvatt til að nálgast þessa viðburði á facebook streymi sem sent verður út og nánari upplýsingar um það munu liggja fyrir á vefsíðunni www.minningardagur.is.

Tilgangurinn með deginum er að minnast þeirra sem látist hafa í umferðinni, leiða hugann að ábyrgð hvers og eins í umferðinni en ekki hvað síst að þakka þeim viðbragðsaðilum sem veita hjálp og björgun þegar umferðarslys á sér stað. Hægt er að nálgast allar upplýsingar um minningardaginn og dagskrá hans á vefnum minningardagur.is.

Einkennislag dagsins verður lag KK, When I Think of Angels, í flutningi hans og Ellenar sem samið var til minningar um systur þeirra sem lést í umferðarslysi í Bandaríkjunum árið 1992. Lagið verður flutt samtímis á öllum útvarpsstöðum á minningardaginn sjálfan kl. 14:00.

Rík hefð er fyrir því á minningardeginum að færa starfsstéttum, sem sinna björgun og aðhlynningu þegar umferðarslys verður, þakkir fyrir mikilvægt og óeigingjarnt starf.

Alþjóðlegur minningardagur
Minningardagurinn er alþjóðlegur undir merkjum Sameinuðu þjóðanna sem hafa tileinkað þriðja sunnudag í nóvember þessari minningu. Um það bil 3.600 einstaklingar láta lífið og hundruð þúsunda slasast í umferðinni í heiminum á degi hverjum. Það eru u.þ.b. 1.3 milljónir á einu ári.

Frá því að fyrsta banaslysið var skráð hér á landi 25. ágúst 1915 hefur 1591 látist í umferðinni á Íslandi (til og með 10. nóvember 2021). Enn fleiri slasast alvarlega, takast á við áföll, sorgir og eftirsjá af þessum völdum.

Það sem af er þessu ári hafa sex einstaklingar látið lífið í umferðinni hér á landi. Allt árið 2020 létust sjö einstaklingar í umferðinni en árið 2019 sex manns. Að meðaltali hafa undanfarin tíu ár 12 manns látist í umferðinni á hverju ári. Tíu ár þar á undan þ.e. frá 2001 til og með 2010 létust að meðaltali 20 manns á ári í umferðinni hér á landi.

Segja má að allt samfélagið deili með sér alvarlegum afleiðingum umferðarslysa. Vart er til sá einstaklingur sem þekkir ekki einhvern sem lent hefur í alvarlegu slysi í umferðinni. Það er því til mikils að vinna að koma í veg fyrir slysin og megi þessi dagur efla vitund okkar fyrir því og ábyrgð.

Vefur minningardagsins

Mynd/Samgöngustofa