Í dag kl. 13.00 fer Andri Hrannar í loftið með Undralandið í beinni útsendingu frá Kanarí eins og endranær.

Andri er búsettur þar og er á 45. degi útgöngubanns eins og allir á Gran Canaria. Þar hefur hann verið einn í þessa 45 daga fyrir utan nokkra ketti sem hafa ákveðið að flytja til hans.

Þátturinn er á dagskrá alla virka daga frá kl. 13.00 – 16.00 að Íslenskum tíma.

Til að hlusta á þáttinn á Kanaríeyjunum og úti um allan heim er hægt að fara inn á “Hlusta” hér efst á síðunni eða smella hér: Hlusta

Andri Hrannar tekur við óskalögum á messenger á  fésbókarsíðu og einnig á snappinu. Endilega addið Andra og verið með í beinni frá Kanarí.