Á bæjarhátíð Siglufjarðar, Síldarævintýrinu sem verður haldið um Verslunarmannahelgina verður bænum skipt upp í fjögur litahverfi.

Skiptingin á litahverfunum er eftirfarandi.

– Suðurbær, sunnan Skriðustígs, er rauður.
– Eyrin, neðan Túngötu er gul. 
– Brekkan, ofan Túngötu, frá Skriðustíg að Þormóðsgötu er græn.
– Norðurbær, utan Þormóðsbrekku er blár.

Íbúar bæjarins eru hvattir til að skreyta húsin sín og verðlaun verða veitt fyrir skemmtilegustu skreytingarnar.

Götugrill í hverfunum verða fimmtudaginn 28. júlí og verður það auglýst nánar síðar.

Hægt er að fylgjast nánar með á facebook síðu Síldarævintýrisins.

Litaskipting

Eldri fréttir frá Síldarævintýrinu:

Verðlaun fyrir skreytingar á Síldarævintýrinu 2020
Siglufjörður gulur, rauður, grænn og blár – Litaskipting
Um 4000 gestir á Síldarævintýri 2019
Sigurvegarar í skreytingum á Síldarævintýrinu á Siglufirði
Glæsileg dagskrá á Síldarævintýri