Tvær brennur verða í Fjallabyggð nú um áramótin, á Siglufirði og í Ólafsfirði.

Kveikt verður í áramótabrennunni í Ólafsfirði kl. 20:00 og verður brennan við Ósbrekkusand. Hálftíma síðar eða kl. 20:30 verður svo kveikt í brennunni á Siglufirði, nánar tiltekið sunnan við Rarik.  Að vanda er það Knattspyrnufélag Fjallabyggðar (KF) sem hefur umsjón með áramótabrennunum.

Á báðum stöðum verða flugeldasýningar en þær annast Björgunarsveitin Strákar á Siglufirði og Björgunarsveitin Tindur í Ólafsfirði.