Árleg hunda- og kattahreinsun í Fjallabyggð

Dýralæknir verður í Fjallabyggð sem hér segir:

Þriðjudaginn 25. október – Hundahreinsun

• Námuvegi 11 Ólafsfirði 13:00 – 15:00
• Áhaldahúsinu Siglufirði 16:00 – 18:00

Miðvikudaginn 26. október – Kattahreinsun

• Áhaldahúsinu Siglufirði 13:00 – 15:00
• Námuvegi 11 Ólafsfirði 16:00 – 18:00

Fimmtudaginn 17. nóvember – Hundahreinsun

• Námuvegi 11 Ólafsfirði 13:00 – 15:00
• Áhaldahúsinu Siglufirði 16:00 – 18:00

Hunda- og kattaeigendum er skylt að mæta með hunda og ketti sína til hreinsunar og er það innifalið í leyfisgjaldi sem þarf að vera greitt fyrir hreinsun. Ef hreinsun hefur þegar farið fram eru eigendur vinsamlegast beðnir um að koma í áhaldahús og framvísa vottorði því til staðfestingar.

Dýraeftirlit Fjallabyggðar