Ástþór Árnason listamaður hefur hlotið nafnbótina Bæjarlistamaður Fjallabyggðar 2024.

Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar samþykkti, á fundi sínum fimmtudaginn 9. nóvember sl., að útnefna Ástþór Árnason Bæjarlistamann Fjallabyggðar árið 2024.

Ástþór Árnason er Siglfirðingur, fæddur 1992, og þegar orðinn landskunnur fyrir húðflúr sín. Hæfileikar Ástþórs á listasviðinu komu snemma fram og var hann ungur að árum er hann opnaði sína fyrstu myndlistarsýningu. Síðan þá hefur hann haldið nokkrar einkasýningar og tekið þátt í samsýningum. Hann lauk stúdentsprófi af listabraut við Menntaskólann á Tröllaskaga árið 2013 og hefur listsköpun verið hans aðalstarf síðan þá.

Ástþór hef­ur vakið mikla at­hygli fyr­ir glæsi­leg­ar tattú­skreyt­ing­ar sín­ar og þykja verk hans einkar fagmannlega unnin og vekja eftirtekt fyrir vönduð vinnubrögð, verkkunnáttu og sögð einstaklega lifandi og persónuleg. Ástþór er með vinnustofu á Siglufirði þar sem hann bæði húðflúrar og vinnur að öðrum verkum sínum. 

Fjölmargar tilnefningar bárust og þakkar markaðs- og menningarnefnd kærlega fyrir þær. 

Ástþóri er óskað innilega til hamingju með nafnbótina Bæjarlistamaður Fjallabyggðar 2024. 

Bæjarlistamaður Fjallabyggðar 2024, verður útnefndur við hátíðlega athöfn í byrjun árs 2024 og verður athöfnin auglýst þegar nær dregur. Við sama tilefni verða afhentir menningarstyrkir Fjallabyggðar fyrir árið 2024.


Mynd: fjallabyggd.is