Lögreglan á Norðurlandi eystra gaf út fyrir skömmu lista yfir COVID-19 smit eftir póstnúmerum í umdæminu.

Þar kemur í ljós að 8 einstaklingur eru í einangrun í Ólafsfirði með COVID-19 og 1 á Siglufirði.

Þar segir einnig að 50 séu í einangrun og 77 í sóttkví á Norðurlandi eystra.

Að minnsta kosti 116 manns greindust með COVID-19 á landinu í gær segir á covid.is

Fólk er kvatt til að gæta vel að persónulegum sóttvörnum, einnig að árétta við fólk að ef það finni til einhverra einkenna eða veikinda að skrá sig í sýnatöku á Heilsuveru.