Björgvin Halldórsson sendir frá sér glænýtt lag sem heitir Ljós þín loga. 

Lagið samdi Halldór Gunnar Pálsson og textinn er eftir Braga Valdimar Skúlason. Textinn fjallar um að þrátt fyrir ástandið sem við öll erum að ganga í gegnum þá munu ljósin loga í hjörtum okkar þar til þessu lýkur.

Lagið er eitt þriggja nýrra laga sem verða á safnplötunni Ég kem með jólin til þín, sem kemur út 20. nóvember á geisladiski og 15. desember á tvöföldum lituðum vínyl. Hin nýju lögin eru Koma jól sem Björgvin syngur með Margréti Eir og Alltaf á jólunum. 

Einnig er þar að finna jólalagið Þegar þú blikkar sem Herra Hnetusmjör og Björgvin gerðu saman fyrir síðustu jól og Aleinn um jólin sem Björgvin og Stefán Karl sungu saman á Jólagestum.

Eins og margir vita þá hafa þau verið ófá jólalögin sem Björgvin hefur sungið í gegnum tíðina.

Hér er lagalistinn á nýju plötunni, sem gefur góða yfirsýn yfir jólalagaferil Björgvins.   

1. Ljós þín loga
2. Þegar þú blikkar (ásamt Herra Hnetusmjör)
3. Einmana um jólin (ásamt Bjarna Ara)
4. Mamma
5. Um jólin
6. Alltaf á jólunum
7. Þú komst með jólin til mín (ásamt Ruth Reginalds)
8. Fyrir Jól (ásamt Svölu)
9. Svona eru jólin (ásamt Eyjólfi Kristjánssyni)
10. Litli trommuleikarinn (ásamt Björgvin Franz)
11. Óskastjarnan (ásamt Svölu)
12. Aleinn um jólin (ásamt Stefáni Karli)
13. Nei, nei, ekki um jólin (ásamt HLH flokknum og Siggu Beinteins)
14. Silfurhljóm
15. Snæfinnur Snjókarl
16. Ég verð heima um jólin
17. Koma jól (ásamt Margréti Eir)
18. Svo koma jólin
19. Jól
20. Glæddu jólagleði í þínu hjarta
21. Þú varst mín ósk (ásamt Siggu Beinteins)
22. Helga nótt (ásamt Vox feminae)

Lagið “Ljós þín loga” á Spotify.

Aðsent.