Bleiki dagurinn er hápunktur Bleiku slaufunnar í október ár hvert.
Á Bleika daginn eru íbúar Fjallabyggðar, eins og landsmenn allir, hvattir til að sína verkefninu stuðning með því að klæðast bleiku og hafa bleika litinn í fyrirrúmi sem víðast.

Verum bleik – fyrir okkur öll 

… berum bleiku slaufuna, klæðumst bleiku og lýsum upp skammdegið í bleikum ljóma svo allar konur sem greinst hafa með krabbamein finni stuðning okkar og samstöðu.

Bleiki dagurinn verður í dag, miðvikudaginn 23. október.