Í kvöld, sunnudaginn 4. desember verður boðið upp í dans í Tjarnarborg, Ólafsfirði.
Stýrihópur um Heilsueflandi samfélag í Fjallabyggð ætlar að ljúka árinu með því að bjóða íbúum Fjallabyggðar upp á tvö opin danskvöld í Tjarnarborg, það fyrra var sunnudagskvöldið 27. nóvember og seinna danskvöldið er í kvöld, 4. desember kl. 20:00.
Danskennarinn Ingunn Hallgrímsdóttir verður á staðnum og kennir og leiðbeinir þátttakendum. Þátttaka er endurgjaldslaus.
Dönsum inn í aðventuna, njótum samverunnar og höfum gaman saman!
Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
Athugið að ekki er krafist skráningu á námskeiðið en gott væri að áhugasamir skrái sig hér fyrir neðan, til hagræðingar fyrir danskennara.