Vegna framkvæmda við gólfefnaskipti verður Bóka- og héraðsskjalasafnið Gránugötu Siglufirði lokað frá og með mánudeginum 2. nóvember. Opnað verður við fyrsta mögulega tækifæri. Nánar auglýst síðar. 

Minnt er á að Bókasafnið í Ólafsfirði er opið frá kl. 13.00 – 17.00. 

Engin gjöld vegna vanskila verða reiknuð á meðan á framkvæmdunum stendur.

Alltaf er hægt hafa samband um fésbókina,  eða í síma 464-9120 / 464-9128 og/eða senda tölvupóst á bokasafn@fjallabyggd.is eða hronn@fjallabyggd.is.

Þar sem jólabækurnar eru byrjaðar að streyma inn er boðið upp á pantanir á bókum, hægt er að sjá nýjustu titlana á vefsíðu bókasafnsins.