Opið er fyrir umsóknir um styrki fyrir árið 2021. Umsóknarfrestur rennur út í dag 28. október 2020.

Athugið að umsóknarfrestur vegna annarra styrkja eða framlaga var til og með 18. október.

Bæjarráð auglýsir eftir umsóknum:

  • um styrki til menningarmála
  • um styrki til hátíðarhalda
  • um styrki til reksturs safna og setra
  • um styrki til fræðslumála
  • um styrki til félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts 2021
  • um aðra styrki eða framlög vegna annarrar starfsemi ársins 2021

Einungis er hægt að sækja um rafrænt inni á vefsíðu Fjallabyggðar www.fjallabyggd.is – Rafræn Fjallabyggð.

Nota þarf rafræn skilríki við umsóknina. Athugið að vista umsókn reglulega á meðan á vinnslu stendur. 

Hægt er að senda fyrirspurnir á netfangið fjallabyggd@fjallabyggd.is eða hringja í síma 464-9100.

Reglur Fjallabyggðar um úthlutun styrkja til menningarmála 

Reglur Fjallabyggðar um úthlutun styrkja til fræðslumála 

Reglur Fjallabyggðar um styrki til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka

Leiðbeiningar:

Hafi umsækjandi ekki áður skráð sig á Rafrænni Fjallabyggð þarf að stofna nýjan aðgang með kennitölu viðkomandi einstaklings eða fyrirtækis og fá lykilorð sent í heimabanka umsækjanda. Þegar notandi hefur skráð sig inn smellir hann á „Umsóknir“. Undir málaflokknum „Fræðslumál“ og “Menningarmál” er smellt á viðeigandi umsókn.  Eftir að umsókn hefur verið send er hægt að skoða hana á Rafrænni Fjallabyggð og fylgjast með stöðu á afgreiðslu málsins.

Umsókn skal berast ekki síðar en kl. 24:00 þann 28. október 2020. Einungis eru teknar til greina umsóknir sem berast innan tilskilins frests og uppfylla þær kröfur sem reglur Fjallabyggðar kveða á um. Þeir aðilar sem fengið hafa styrk áður þurfa að skila inn greinargerð um ráðstöfun þess fjár.

Mynd/Fjallabyggð