Nú fer að styttast í Þorláksmessu og menn farnir að hlakka til!

Ellertsson sendi frá sér rokkblús í anda ZZ Top og John Lee Hooker um þá nautn að gæða sér á skötu á Þorláksmessu í góðra vina hópi. Sannkallað skötustuð og Þorláksmessulag.

Lagið nefnist Þorláksmessa og er nú þegar komið í spilun á FM Trölla, og bætist þannig í annars fjölbreytta flóru “öðruvísi” jólalaga á FM Trölla.


Þorláksmessa á Spotify

Þorláksmessa:
Fékk skötu,
fína mötu,
flot með
mýkir geð.
Brauð, smér
bauðst mér,
rófur, öl.
Út fló böl.