Bólusetningar í viku 20 á Norðurlandi – 18.-21. maí.

Í dag þann 18. maí eða í viku 20 fær HSN um 2500 skammta af bóluefni.

Pfizer bóluefnið um 2000 skammtar verða nýttir í seinni bólusetningu þeirra sem fengu Pfizer bóluefni 27.-30. apríl og í seinni bólusetningu hjá þeim sem fengu Astra Zeneca bóluefni fyrir 12 vikum og eiga að fá Pfizer í seinni bólusetningu. Einnig verður haldið áfram með að bólusetja fyrri bólusetningu hjá þeim sem hafa undirliggjandi sjúkdóma og er gert ráð fyrir að fara langt með eða klára þann hóp.

Janssen bóluefnið um 500 skammtar verða notaðir til að bólusetja m.a. leikskólakennara og flug- og skipaáhafnir sem þurfa að fara erlendis.

Næstu forgangshópar eru grunnskólakennarar og starfsmenn félagsþjónustunnar og verður mögulega hægt að byrja á þeim á einhverjum starfsstöðvum.

Á Akureyri fer bólusetning með Pfizer bóluefninu fram þriðjudaginn 18. maí á Slökkvistöðinni og bólusetning með Janssen bóluefninu fer þar fram 20. maí. Fólk mun fá boð með sms skilaboðum.

Á öðrum heilsugæslum á Norðurlandi mun fólk í þessum hópum fá boð í bólusetningu annaðhvort með sms skilaboðum eða með símtali þar sem tími og staðsetning kemur fram.