Þetta myndband var tekið á Siglufirði í ágúst 2019. Það minnir okkur á betri tíma og að brátt kemur sumar með blóm í haga.
Myndbandið tók Dagur Sólon Andrason með dróna. Dagur Sólon er 12 ára og er efnilegur í drómamyndatökum.
Dagur Sólon er búsettur í Reykjavík. Hann kemur flest sumur norður á Siglufjörð í heimsókn til ömmu sinnar og afa, þeirra Guðrúnar Árnadóttur og Arnars Ólafssonar með föður sínum Andra Hrannari Einarssyni.
Trölli.is þakkar Degi fyrir þetta skemmtilega myndband.
Mynd: úr einkasafni