Leiðinda óveður var víða um land í gær og fóru íbúar Tröllaskaga ekki varhluta af því. Víða var ófært á þjóðvegum vegna ofankomu, hvassviðris og snjóflóðahættu, snjómoksturstæki höfðu ekki undan við að moka í þéttbýli og lentu ökumenn víða í vandræðum.

Snjómoksturstæki hafa vart undan ofankomunni
Í Ólafsfirði var ölduhæð um 10 metrar og gekk sjór yfir varnagarðana og var mikið öldurót í höfninni, svo mikið að lá við að bátur færi á land.

Brim gekk yfir varnargarðana í Ólafsfirði. Mynd/ Guðmundur Ingi Bjarnason

Mynd: Guðmundur Ingi Bjarnason

Mynd: Guðmundur Ingi Bjarnason
Í dag er spáð norðan 8-15 m/s víðast hvar en 13-18 á Vestfjörðum.
Snjókoma og skafrenningur er um landið norðanvert en skýjað með köflum og yfirleitt úrkomulítið sunnantil.
Hiti 0 til 5 stig víða við suður og austurströndina en um eða undir frostmarki annars staðar.

Hríðarkóf í Ólafsfirði. Mynd: Guðmundur Ingi Bjarnason
Vegagerðin áformar að hefja snjómokstur um leið og veður gengur niður með morgninum.

Við höfnina á Siglufirði

Það hefur kyngt niður snjó í nótt í Ólafsfirði. Mynd/ Guðmundur Ingi Bjarnason

Tekin í morgun í Ólafsfirði. Mynd/ Guðmundur Ingi Bjarnason

Byrjað er að hreinsa götur Ólafsfjarðar. Mynd/ Guðmundur Ingi Bjarnason
Myndir: Guðmundur Ingi Bjarnason/Kristín Sigurjónsdóttir