Merkilegur og ánægjulegur atburður átti sér stað í fyrsta skipti í Ráðhúsi Dalvíkurbyggðar 27. september þegar byggðaráðsfundur var einungis setinn  af konum.

Þórhalla Franklín Karlsdóttir (B), kemur inn í fjarveru Jóns Inga Sveinssonar,
Þórunn Andrésdóttir (D), kemur inn í fjarveru Gunnþórs Eyfjörð Gunnþórssonar
og Dagbjört Sigurpálsdóttir (J), kemur inn í fjarveru Guðmundar St. Jónssonar

Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri sat svo einnig fundinn eins og venja er.

 

Mynd: Dalvíkurbyggð