Þann 6. september sl. var innflutningur hunda frá Noregi bannaður tímabundið vegna alvarlegra veikinda í hundum þar í landi af óþekktum orsökum.

Norska matvælastofnunin, Mattilsynet, hefur nú upplýst að veikindin séu í rénun og að ekki sé sérstök ástæða til þess að forðast samgang á milli hunda þar sem flest bendir til þess að sjúkdómurinn smitist ekki beint á milli hunda. Í ljósi þessa hefur atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið afturkallað bann við innflutningi hunda frá Noregi. Er því á ný heimilt að flytja inn hunda sem uppfylla skilyrði reglugerðar um innflutning gæludýra og hundasæðis þaðan.

Tæplega 200 tilfelli af hundum með alvarlegan blóðugan niðurgang og uppköst hafa komið upp í Noregi síðan í byrjun ágúst og tæplega 50 þeirra hafa drepist. Bakterían Providensia alcalifaciens hefur greinst hjá um 50 þeirra sem veiktust, en einnig hjá einstaka heilbrigðum hundum, en þá í mun minna magni. Erfðafræðilegar rannsóknir á bakteriunni hafa sýnt fram á náin tengsl á milli 14 þessara tilfella. Norska dýraheilbrigðisstofnunin telur orsök sjúkdómsins þó vera margþætta en rannsóknir munu halda áfram með það að markmiði að finna fleiri samnefnara með þessum tilfellum.

Ítarefni

 

Heimild: MAST