Nýjasta dagbók Unnar Valborgar Hilmarsdóttur, sveitarstjóra Húnaþings vestra er komin á vefinn.

Eins og vanalega stiklar sveitarstjóri á stóru yfir verkefni liðinnar viku. Þessa dagana eru að raungerast nokkur stór verkefni sem hafa verið í vinnslu um nokkurt skeið, m.a. endurbætur á Félagsheimilinu Hvammstanga, ráðning tengslafulltrúa og samkomulag um stórfellda íbúðauppbyggingu en Húnaþing vestra varð í síðustu viku þriðja sveitarfélagið á landinu til að skilgreina framlag sitt til aukins framboðs íbúðarhúsnæðs innan rammasamnings milli ríkis og sveitarfélaga.  

Dagbókarfærsluna er að finna hér.

Mynd/af vefsíðu Húnaþings vestra