Eining-Iðja minnir félagsmenn sína á, að þeir eiga rétt á að fá greidda desemberuppbót samkvæmt kjarasamningum. Upphæðin er mismunandi eftir samningum og við hvaða tímabil er miðað til skilgreiningar á fullu starfi. Uppbótina skal greiða í einu lagi og ofan á hana reiknast ekki orlof.

  • Full desemberuppbót árið 2018 er kr. 89.000 hjá þeim sem vinna á almennum vinnumarkaði.
  • Full desemberuppbót árið 2018 er kr. 89.000 hjá þeim sem vinna hjá ríki.
  • Full desemberuppbót árið 2018 hjá þeim sem vinna hjá sveitarfélögum er kr. 113.000.
  • Starfsmenn hjá ríkinu eiga að fá desemberuppbót greidda 1. desember
  • Starfsmenn sveitarfélaga eiga að fá desemberuppbót greidda 1. desember, skv. kjarasamningi.
  • Starfsmenn á almennum vinnumarkaði eiga að fá desemberuppbót  greidda eigi síðar en 15. desember.

Með því að smella á línurnar hér fyrir neðan má sjá töflu miðað við viðkomandi samning yfir upphæð desembersorlofsgreiðslu miðað við starfshlutfall og starfstíma.