Nú er unnið að endurskoðun á aðalskipulagi Fjallabyggðar. Bæjarstjórn hvetur alla íbúa og aðra hagsmunaaðila til að kynna sér þau skipulagsdrög sem nú eru lögð fram.
Vegna ástandsins í samfélaginu verður ekki haldinn íbúafundur um málið á þessu stigi en þess í stað sendur út bæklingur á hvert heimili og drögin sett fram á kortasjá sveitarfélagsins auk þess sem hefðbundnir uppdrættir og greinargerð er aðgengileg á vefsíðu Fjallabyggðar.
Aðalskipulag Fjallabyggðar 2020-2032 er sett fram í greinargerð og á uppdráttum.
Greinargerðinni hefur verið skipt upp í fjögur skjöl:
Uppdrættirnir eru þrír:
Athugasemdum og ábendingum við drög þessi skal skila skriflega til Ármanns Viðars Sigurðssonar, deildarstjóra tæknideildar Fjallabyggðar, Gránugötu 24, 580 Siglufirði eða með tölvupósti til armann@fjallabyggd.is. Tilgreina skal nafn, kennitölu og heimilisfang í innsendum gögnum.