Á vefsíðunni skagfirdingar.is má finna fróðleik um sameiningu Akrahrepps og Sveitarfélagsins Skagafjarðar en fyrstu kosningar til sameiningar sveitarfélaga í Skagafirði fóru fram árið 1993.

Þar kemur fram m.a.:

Íbúar Akrahrepps og Sveitarfélagsins Skagafjarðar hafa samþykkt sameiningu sveitarfélaganna tveggja. Sveitarstjórn sameinaðs sveitarfélags verður kjörin 14. maí næstkomandi og tekur sameinað sveitarfélag gildi 15 dögum síðar.

Í Akrahreppi var kjörsókn 86,5 prósent. Alls greiddu 135 atkvæði, en 156 voru á kjörskrá. 

  • Já sögðu 84
  • Nei sögðu 51
  • Auðir og ógildir 0

Í Sveitarfélaginu Skagafirði var kjörsókn var 35,5% prósent. Alls greiddu 1.022 atkvæði, en 2.961 var á kjörskrá.

  • Já sögðu 961
  • Nei sögðu 54
  • Auðir og ógildir voru 7

Niðurstöður eru birtar með fyrirvara um lokaskil kjörstjórna til Hagstofu.

Uppfærð 20.01.22 kl. 10 með upplýsingum um kosningaþátttöku í Akrahreppi.


Skoða á skagfirdingar.is