Undankeppni Stóru upplestrarkeppninnar var haldin í Grunnskóla Fjallabyggðar þann 5. apríl.

Nemendur 7. bekkjar tóku þátt með vönduðum upplestri á bæði textum og ljóðum.

Allir nemendur bekkjarins hafa æft upplestur í vetur og hluti þeirra tók þátt í keppninni.

Þriggja manna dómnefnd skipuð þeim Jónu Vilhelmínu Héðinsdóttur, Sigríði Guðmundsdóttur og Lindu Leu Bogadóttur valdi síðan tvo fulltrúa til að taka þátt í lokakeppninni sem fer fram í Bergi á Dalvík 27.apríl næstkomandi.

Það voru þær Sigurlaug Sturludóttir og Tinna Hjaltadóttir sem voru valdar og óskum við þeim til hamingju með árangurinn.

Myndir frá keppninni má sjá hér á vefsíðu skólans.

Á forsíðumynd eru: Sigurlaug Sturludóttir, Sigurlaug Guðjónsdóttir umsjónarkennari og Tinna Hjaltadóttir