Lögreglan vil koma því á framfæri við ökumenn að stilla ökuljós bifreiða ekki á “auto”.

Lögum samkvæmt er skylt að aka með ökuljós kveikt allan sólarhringinn, bæði framan og aftan á ökutæki. Á mörgum nýjum bifreiðum kviknar sjálfkrafa á hvítum ljósum að framan (dagljósabúnaður) sem þó eru ekki ökuljós heldur stöðuljós. Þegar þessi stöðuljós loga ein og sér er ekki tryggt að afturljós logi.

Lögreglan hvetur ökumenn til að hafa ljósarofann allaf á stillingu fyrir ökuljós, sjá myndina hér að neðan.

Mynd/Lögreglan

Ljósin slokkna þegar kveikjuláslykill er tekin út eða a m k þegar bílstjórahurð er lokað og bifreiðin yfirgefin. Þannig er tryggt að ekki gleymist að hafa ökuljós, bæði að framan og aftan, kveikt meðan á akstri stendur.

Forsíðumynd: Pixabay