Kiwanisklúbburinn Skjöldur býður eldri borgurum í Fjallabyggð til grillveislu í skógræktinni á Siglufirði laugardaginn 3. september frá kl. 12:30.
Grillað verður í Stórarjóðri við árbakkann syðst í skóginum, en ekki hefur verið boðið upp á grillveislu síðastliðin tvö ár vegna Covid-19.

Borð og stólar á staðnum og ljúffengar veitingar.
Vonumst til að sjá ykkur sem flest. 

Kiwanisklúbburinn Skjöldur, Fjallabyggð.

Grillveisla eldri borgara í Skarðsdalsskógi
Grillveisla fyrir eldri borgara í Fjallabyggð