Á 798. fundi bæjarráðs Fjallabyggðar voru opnuð tilboð í viðbyggingu við Grunnskólann í Ólafsfirði.

Engin tilboð bárust í viðbygginguna og harmar bæjarráð það og hefur falið deildarstjóra að bjóða verkið út aftur með lengdum verktíma sbr. minnisblað hans.