Alls voru 83.939 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. desember sl. segir á vefsíðu Þjóðskrár Íslands og fjölgaði þeim um 3.393 einstaklinga frá 1. desember 2024 eða um 4,2%.

Mest fjölgun hefur verið á ríkisborgurum frá Úkraínu, þeim hefur fjölgað um 447 einstaklinga frá 1. des. sl. Þar á eftir koma ríkisborgarar frá Venesúela og loks Rúmeníu. 

Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 1.956 einstaklinga eða um 0,6%.

Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. desember 2025 til samanburðar við stöðuna 1. desember 2019-2024.

Hlutfall erlendra ríkisborgara

Þróun erlendra ríkisborgara

Mynd/pixabay