Nýr sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir hefur nú formlega tekið við lykl­un­um úr hendi fráfarandi sveitarstjóra, Katrínar Sigurjónsdóttur.

Við það tækifæri var Katrínu óskað velfarnaðar í framtíðinni og þakkað kærlega fyrir samstarfið og samfylgdina undanfarin ár.

Eyrún Ingibjörg hefur verið í heimsókn undanfarna daga að kynna sér aðstæður í Dalvíkurbyggð, hún hefur formlega störf sem sveitarstjóri í byrjun september.