Lagt var fram erindi Árna Rúnars Örvarssonar á 744. fundi bæjarráðs Fjallabyggðar þar sem hann óskar eftir undanþágu frá 11. gr. lögreglusamþykktar fyrir Fjallabyggð um meðferð skotvopna.

Tilgangur undanþágunnar er að eyða vargfugli við Leirutanga, hafnir Fjallabyggðar og á fleiri stöðum.

Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti að veita umrædda undanþágu og felur deildarstjóra Umhverfis- og tæknideildar að ræða við Árna um útfærslu málsins og að vinna umsóknina áfram.