Við lok ársþings Sjómannasambands Íslands í gær, 31. október, færði Sjómannasambandið, Félag skipstjórnarmanna og Félag vélstjóra og málmtæknimanna Slysavarnaskóla sjómanna 25 milljónir að gjöf til kaupa á búnaði fyrir skólann.
Gjöfin er hluti félaganna í Fiskifélagi Íslands, sem var formlega slitið í júní á þessu ári og var að mestum hluta kominn til vegna sölu á húsi Fiskifélagsins að Ingólfsstræti 1 í Reykjavík.
Fiskifélag Íslands var stofnað árið 1911 með það að markmiði að efla fiskveiðar Íslendinga. Félaginu var meðal annars ætlað að fylgjast með tækninýjungum í veiðum og vinnslu og miðla þekkingu til sjómanna og bæta öryggi þeirra.
Það er því í anda upphaflegra markmiða sem þessi þrjú félög færa Slysavarnaskóla sjómanna þá fjármuni sem komu í þeirra hlut við slit Fiskifélagsins. Þeim fjármunum sem félagið átti var skipt milli eigenda þess í samræmi við fulltrúafjölda á aðalfundi þess og þessi þrjú félög ákváðu að láta alla fjármuni sem til þeirra runnu af þessu tilefni, til Slysavarnaskólans. 14 milljónir koma frá Sjómannasambandinu og sitthvor fimm og hálf milljónin frá Félagi skipstjórnarmanna og Félagi vélstjóra og málmtæknimanna.
Bogi Þorsteinsson skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna tók við gjöfunum við lok þings Sjómannasambandsins á Grand Hótel í gær.

Myndir/aðsendar



