Á dögunum lagði hópur vaskra manna frá Færeyjum upp í stutta Íslandsför, til þess eins að heimsækja Síldarminjasafnið, en til þess höfðu þeir fengið eindregna hvatningu og stuðning frá Færeyska Þjóðminjasafninu og Menntamálaráðuneyti Færeyja.

Saman vinna þeir að uppbyggingu sjóminjasafns í Miðvági í Færeyjum og komu hingað til að leita innblásturs, þekkingar og reynslu.

Þau Anita Elefsen og Örlygur Kristfinnsson, núverandi og fyrrum safnstjórar Síldarminjasafnsins tóku á móti gestunum og leiddu þá um sýningar safnsins og sögðu frá uppbyggingunni, sem hefur í raun verið ævintýri líkust. ✨️

Það verður spennandi að fylgjast með uppbyggingu þeirra Færeyinga í Miðvági og að sjá þar nýtt sjóminjasafn rísa á komandi árum.

Myndir og heimild/Síldarminjasafn Íslands