Jarðskjálfti að stærð 3,4 varð kl. 11:42 um 12 km norðvestur af Gjögurtá. Tilkynningar bárust til Veðurstofunnar um að hann hefði fundist á Dalvík og í Ólafsfirði.
Undirrituð fann skjálftann á Siglufirði.
Veðurstofa Íslands greinir frá þessu. Nokkrir minni eftirskjálftar hafa fylgt á eftir.