Félagsstarf aldraðra og dagdvöl eldri borgara hefst samkvæmt vikuplani mánudaginn 5. september nk. og er dagskráin fjölbreytt að venju. Allir heldri borgarar Fjallabyggðar ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi og notið félagsstarfsins í vetur.
Dagskrár eru aðgengilegar í pdf formi hér fyrir neðan:
Skálarhlíð – Siglufirði Hús eldri borgara í Ólafsfirði
Dagskrár verða framlengdar eða uppfærðar eftir því sem við á.
Nánari upplýsingar veitir Helga Hermannsdóttir, Skálarhlíð, í síma 467-1147 og 898-1147 og Gerður, Húsi eldri borgara, sími 864-4887
Myndir tók Sveinn Snævar Þorsteinsson af hinum ýmsu samverustundum eldri borgara í Fjallabyggð í sumar.