Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar auglýsir eftir tilnefningum um hver hljóta skuli nafnbótina Bæjarlistamaður Fjallabyggðar árið 2023. 

Aðeins þeir listamenn sem búsettir hafa verið í Fjallabyggð að minnsta kosti um tveggja ára skeið koma til greina. Nafnbótin Bæjarlistamaður Fjallabyggðar getur hlotnast listamanni eða hópi. Styrkur til bæjarlistamanns 2023 nemur kr. 300.000.- til einstaklings og kr. 400.000.- til hóps.

 Frestur til að skila inn tilnefningu er til 1. nóvember nk. 

Tilnefningar berist til markaðs- og menningarfulltrúa, Lindu Leu Bogadóttur á netfangið lindalea@fjallabyggd.is, eða í síma 464-9100. Einnig er að finna eyðublað undir “Rafræn Fjallabyggð” á heimasíðu Fjallabyggðar.

Reglur um tilnefningu bæjarlistamanns má kynna sér hér.

Forsíðumynd/ Fjallabyggð sýnir verk eftir bæjarlistamann Fjallabyggðar 2022, Aðalheiði S. Eysteinsdóttur