Á fundi bæjarráðs Fjallabyggðar í gær var rætt um bókun bæjarstjórnar Akureyrar þar sem lagt er að sjávarútvegsráðherra að banna allt laxeldi í sjó í Eyjafirði, án frekari umræðu og samráðs sveitarfélaga á svæðinu.
Bæjarráð Fjallabyggðar leggst eindregið gegn þessari bókun bæjarstjórnar Akureyrar.
Í bókun bæjarráðs Fjallabyggðar segir meðal annars.
Með uppbyggingu undanfarinna ára hefur laxeldi í sjó haslað sér völl sem mikilvæg atvinnugrein á Íslandi um leið og í ljós hafa komið miklir möguleikar til frekari þróunar greinarinnar. En á sama tíma og ljóst er að miklir möguleikar eru til þróunar og vaxtar greinarinnar þá er einnig ljóst að varlega þarf að stíga til jarðar. Gæta þarf að áhrifum, jákvæðum sem neikvæðum, á náttúru og hugsanlegum áhrifum á aðrar atvinnugreinar sem og samfélög í heild. Því telur bæjarráð nauðsynlegt að gaumgæfa allar hliðar máls og að það sé best gert með öflugu samtali og samráði allra sveitarfélaga við Eyjafjörð með þátttöku íbúa og þekkingarsamfélags.
Bæjarráð Fjallabyggðar leggur til við Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að hann óski nú þegar eftir mati á burðarþoli Eyjafjarðar m.t.t. fiskeldis og að í beinu framhaldi verði unnið áhættumat fyrir erfðablöndun vegna mögulegs fiskeldis í Eyjafirði.
Að síðustu ítrekar bæjarráð mikilvægi þess að áfram verði unnið í anda þess samráðs sem verið hefur með sveitarfélögum í firðinum og að virðing sé ætíð borin fyrir sjónarmiðum þeirra sem sjá tækifæri framtíðar í fiskeldi.
Bæjarstjóra falið að koma ofangreindum sjónarmiðum á framfæri við ráðherra, sveitarfélögin við Eyjafjörð og Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra.
Fundargerð 9. fundar stjórnar SSNE dags. 6. maí 2020
Fundargerð 3475. fundar bæjarstjórnar Akureyrarbæjar dags. 19. maí 2020
Svar Hafrannsóknarstofnunar við spurningum SSNE varðandi burðar- og áhættumat í Eyjafirði dags. 12. maí 2020