Fjallabyggð leitar eftir áhugasömum aðila til þess að sjá um dúntekju á Leirutanga, Siglufirði. Skiptar skoðanir hafa verið á framkvæmd dúntekju eins og sjá má í eldri fréttum á Trölli.is.
Hljómar nokkuð undarlega að bæjarráð ætli sér “að bjóða út alla dúntekju“
Meginþættir verkefnis:
- Girða af varpsvæði æðarfugls á Leirutanga í landi Fjallabyggðar Siglufirði.
- Halda vargi frá svæði.
- Annast hreinsun, umhirðu og eftirlit á varpsvæði.
- Leggja stíg.
- Koma upp fuglaskoðunarskýli.
- Koma upp skilti og merkingum til að stuðla að fræðslu og til varúðar.
- Hirða og tína dún úr hreiðrum, vinna dún og koma í nýtingu.
Þeir aðilar sem vilja taka þátt í verðkönnun vegna þessa skulu senda erindi til tæknideildar Fjallabyggðar með neðangreindum upplýsingum.
- Nafn, kennitölu, heimilisfang, almennt símanúmer, netfang.
- Stutt lýsing á framtíðarsýn bjóðenda hvað varðar viðgang og vöxt svæðisins.
- Reynsla bjóðanda af sambærilegri umsjón með varpsvæði eða varpsvæðum.
- Almennar upplýsingar um aðra, sbr. að ofan, sem að verki munu koma.
- Upplýsingar um fyrirhugaða vinnslu og nýtingu æðardúns.
- Upplýsingar um búnað o.fl. til að vinna verkið.
Svar við bréfi Örlygs Kristfinnssonar vegna dúntekju í Fjallabyggð
Mynd/Steingrímur Kristinsson