Garnaveiki hefur verið staðfest á sauðfjárbúi í Tröllaskagahólfi, nánar tiltekið á bænum Brúnastöðum í Fljótum.

Garnaveiki hefur ekki greinst í hólfinu frá árinu 2008. Garnaveiki er ólæknandi smitsjúkdómur í jórturdýrum, en með bólusetningu er hægt að verja sauðfé fyrir sjúkdómnum og halda smitálagi í lágmarki. Á bæjum sem garnaveiki greinist á gilda ýmsar takmarkanir sem lúta að því að hindra smitdreifingu.

Tilfellið uppgötvaðist við smölun um síðustu helgi og eftir að héraðsdýralæknir hafði skoðað kindina var henni lógað, sýni tekið úr henni og sent til greiningar á Keldum. Sýnið reyndist jákvætt m.t.t. garnaveiki.

Orsök sjúkdómsins er lífseig baktería af berklaflokki (Mycobacterium paratuberculosis). Helstu einkenni hennar eru hægfara vanþrif með skituköstum. Í þeim hjörðum sem veikin kemur upp getur einnig verið þó nokkuð um „heilbrigða smitbera“. Meðgöngutími í sauðfé er 1-2 ár eða lengri. Garnaveikibakterían veldur bólgum í mjógörn og oft einnig í langa, ristli og lifur. Sýklarnir berast út með saurnum og geta lifað í 1- 1 ½ ár í óhreinindum og pollum umhverfis gripahús, við afréttargirðingar, í sláturúrgangi og í líffærum skepna sem drepast út um haga. Sýking verður um munn með saurmenguðu fóðri og vatni.

Um garnaveiki og varnir gegn henni gildir reglugerð nr. 911/2011. Markmið hennar er að stuðla að útrýmingu garnaveikinnar. Í reglugerðinni eru m.a. ákvæði um þær takmarkanir sem gilda um garnaveikibæi. Þar á meðal er að óheimilt er að láta til lífs sauðfé, geitur eða nautgripi í 10 ár frá síðustu greiningu á garnaveiki eða vanrækslu á bólusetningu. Mikilvægt er að huga að því að smit getur borist með landbúnaðartækjum, heyi, áburði o.fl. en flutningur á öllu slíku frá garnaveikibæjum er einnig óheimill. Reglugerðin kveður einnig á um skyldu til bólusetningar sauðfjár á tilteknum svæðum á landinu, þ.á.m. í Tröllaskagahólfi. Sinni eigandi sauðfjár ekki skyldu sinni til bólusetningar getur Matvælastofnun fyrirskipað bólusetningu fjárins á kostnað eiganda.

Matvælastofnun birtir lista yfir garnaveikibæi sem aðgengilegur er á vef stofnunarinnar.

Ítarefni