Sveitarfélagið Fjallabyggð óskar eftir verðtilboði í hreinsun gatna, gangstétta, göngustíga og bílastæða á Siglufirði og Ólafsfirði.
Verkið snýst um „vorhreingerningu“, sópun og smúlun á götum, gangstéttum, göngustígum og bílastæðum samkv. nánari verklýsingu. Gert er ráð fyrir þriggja ára þjónustusamningi.
Til að fá nánari upplýsingar og verklýsingu, sendið póst á gisli@fjallabyggd.is
Verðtilboðum skal skila á netfangið gisli@fjallabyggd.is fyrir kl.14:00 þriðjudaginn 31. mars 2026.
Mynd: Fjallabyggð
