Atvinnuleysi í júlímánuði í Fjallabyggð hefur aukist um fimm frá því í júlí 2018. Í  júlí 2018 voru 32 einstaklingar án atvinnu en júlí 2019 voru 37 án atvinnu. Um er að ræða 18 konur og 19 karla. Atvinnuleysi er mest hjá fólki á aldrinum 30 – 34 ára, eða 10 manns.

Ef rýnt er frekar í atvinnuleysistölur Hagstofunnar fyrir Fjallabyggð má sjá í hvaða starfsgreinum þeir eru og hvaða menntun þeir hafa.