Grunnskóli Fjallabyggðar

Skólasetning Grunnskóla Fjallabyggðar verður föstudaginn 23. ágúst með þessum hætti:

2.-5. bekkur mætir í skólahúsið við Norðurgötu Siglufirði kl. 11:00.

6.-10. bekkur mætir í skólahúsið við Tjarnarstíg Ólafsfirði kl. 13:00.

1. bekkur mun verða boðaður í einstaklingsviðtöl föstudaginn 23. ágúst. Viðtalsboðun verður send heim til foreldra.

Kennarar munu taka á móti nemendum í bekkjarstofum. Þeir fara yfir stundatöflu og aðrar almennar upplýsingar sem þarf í upphafi skólaárs, afhenda gögn sem þurfa að fara heim og fleira sem þarf til þess að hefja skólastarf.

Rútuferðir í tengslum við skólasetningu:

Rúta frá Tjarnarstíg í tengslum við skólasetningu yngra stigs:

Kl. 10:45 og til baka eftir skólasetningu

Rúta frá Siglufirði í tengslum við skólasetningu eldra stigs:

Kl. 12:45  frá skólahúsinu við Norðurgötu, til baka eftir skólasetningu.