Á 651. fundi bæjarráðs Fjallabyggðar samþykkti ráðið að óska eftir umsögn deildarstjóra fræðslu,- frístunda- og menningarmála og markaðs- og menningarfulltrúa varðandi erindi Anitu Elefsen fh. Síldarminjasafnsins, dags. 05.05.2020 þar sem óskað var eftir stuðningi við starfsemi safnsins í ljósi þeirra rekstrarerfiðleika sem safnið stendur frammi fyrir m.a. vegna afbókana skemmtiferðaskipa og áætlunar um fækkun gesta.

Óskað var eftir stuðningi í formi sumarstarfsfólks, verkefnastyrks eða samstarfs um sumardagskrá.

Lagt fram vinnuskjal deildarstjóra fræðslu,- frístunda og menningarmála og markaðs- og menningarfulltrúa dags. 30.05.2020 og deildarstjóra stjórnsýslu- og fjármáladeildar dags. 08.06.2020 þar sem lagt er til að Síldarminjasafninu verði boðinn einn til tveir sumarstarfsmenn í tvo mánuði í gegnum átaksstörf námsmanna í samvinnu við Vinnumálastofnun.

Bæjarráð samþykkir að bjóða safninu stuðning í formi tveggja sumarstarfsmanna í tvo mánuði . Áætlaður styrkur kr. 828.000.